Selfoss vs Þorló...
04.03.2008 22:46:23 / busar

We love you Arsenal, we do !

Algjör sæluvíma sem heltók mann fyrr í kvöld !  Arsenal tók sig loks saman í andlitinu og hreinlega rassskelltu AC Milan á þeirra eigin heimavelli 2-0 með stórkostlegum mörkum frá Fabregas og Adebayor, sem loksins skoraði í meistaradeild !  Óendanlega sætur sigur og ljóst að með þessum sigri ættum við klárlega að stefna á sigur í Meistaradeild og úrvalsdeildinni!  Ekki spurning!  Hreinlega besta og fallegasta liðið í heiminum og enginn sem getur mótmælt því!  Efstir í deildinni, og nýbúnir að slá Evrópumeistarana úr leik í 16 liða úrslitum!  Alveg mergjað!


Besti miðjumaður í heimi í dag!    

                                                                     Kv, Baldur

    

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 00:07:22 / busar

Dexter


Ég hef áttað mig á því að besti þátturinn í íslensku sjónvarpi í dag er Dexter. Ég hlakka alltaf til sunnudagskvölda, þegar þessi snilldarþáttur er sýndur. Þetta fjallar um blóðrannsóknarmanninn Dexter, sem hefur það að þráhyggju að drepa glæpamenn og þá sem eiga það skilið.  Eða allavega síðasta sería fór í það. Serían sem nú er í gangi snýst mikið um það að passa að láta ekki ná sér.  Algjörir snilld og fer leikarinn, Michael C. Hall algjörlega á kostum með því að skera kalla á háls án þess að nokkur vísbending sé til um að það hafi verið hann sem var að verki!  Þátturinn í kvöld var einstaklega góður og spennandi, eins og allir aðrir þættir, Dexter heldur áfram að sofa hjá hinni sexy, bresku Lilu, sem heldur alltaf að hún sé að hjálpa honum að komast yfir eiturlyfjafíkn sem hrjáir hann, á meðan það er nú bara morðfíknin gamla góða sem er að hrella hann!  Mínir uppáhalds þættir í dag og finnst mér að allir eigi að taka sunnudagskvöldin frá til að horfa!  Og ekki skemmir að á undan þessum þætti er Boston Legal sýnt á S1!  Loksins að það er gaman af sjónvarpinu á sunnudögum!:)



Ógeðslega töff

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 19:19:12 / busar

MEISTARAR!

Fannst fólki þetta ekki æðislegt?!!  3ja sæti Turtles, 2. sæti Mafían, og 1. sæti  GOTHAM!  Klárlega sætasti sigurinn til þessa !  Alveg ógeðslega gaman og tárast ég nánast þegar ég hugsa til að þetta hafi verið mitt síðasta flóafár..!   Til hamingju við!!



» 3 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 22:15:00 / busar

Flóafár

    Jæja!  Það er að bresta á !  Flóafárið óviðjafnanlega er núna á föstudaginn!  Verð ég að segja að síðasta vikan hefur verið ógeðslega skemmtileg í að skipuleggja þetta, en alveg jafn stressandi !  EN það skilar sér allt á föstudaginn.  Gotham liðið á eftir á eftir að vera ógeðslega flott, og ég ætla að trúa því að hin liðin eigi eftir að vera það líka!  
    Það sem ég vildi helst rabba um er, eru engir svona spenntir nema ég, Plóli og Billi og hinir liðsstjórarnir ?  Ég verð að viðurkenna að við erum að farast úr spenningi!  Ég hef þá tekið eftir einu, að allir litlu busarnir okkar sem ekkert vita um þetta, láta eins og þeim sé alveg sama og þau séu ekkert spennt !  Ein ábending.. Þið eigið að vera spennt!  Þetta er stærsti viðburðurinn í F.Su. ár hvert og þetta er það skemmtilegasta sem hægt er að gera í skólanum!  Vil ég minna á að sigur í þessari keppni færir þér ævilanga hamingju og heiður sem einungis 160 F.Su.-ingar ár hvert fá að njóta, og það engan smá heiður!  Ætla ég því að hvetja alla til að vera ekki félagsskítar og mæta í brjáluðum gír ! 

   Fyrir liðsmenn Gotham liðsins vil ég minna á að borga fyrir bolina, þið megið sækja þá á fimmtudagskvöldið út í skóla eða bara þegar þið mætið á föstudaginn.  Mun betra væri samt ef þið sækið þetta á fimmtudagskvöld.  Síðan á morgun (fimmtudag) munum við hengja upp lista yfir þrautir og hverjir taka þátt í hverri þraut og í réttri hlauparöð.  Flott væri ef fólk kíkti á það til að vera með allt sitt á hreinu !




» 1 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 00:12:04 / busar

John Rambo

Fólk verður að afsaka skriftarleysið, þetta ,,gay ass'' blog.is er búið að vera e-ð leiðinlegt og hleypir manni stundum ekki inn á síðuna !  een vonandi er það allt komið í lag núna..

    En ég fór í bíó í kvöld, og varð Rambo fyrir valinu.  Sly algjörlega í essinu sínu, drepur ca. 300 með stærstu vélbyssu sem ég hef séð, já byssu sem hreinlegag tætti kallana í sundur, og hann deplar ekki auga!  Og jújú að sjálfsögðu fékk hann eitt skot í öxlina svona bara til að sýna smá meir hvað hann er harður, svo tekur hann utan um öxlina á sér og flexar bicepnum framan í fólk. Minni á að kallinn er kominn á sjötugsaldurinn. Mjög flott mynd, með hins vegar slöppustu samræðuatriðum sem ég hef bara séð í mynd.  Maybe Sly (Stallone) ætti að fá smá hjálp með handritin í framtíðinni, kannski fá Quentin Tarantino eða Guy Ritchie með sér.  (þið sem hafið séð Pulp Fiction, Reservoir Dogs eða Snatch vita vel hvað ég er að meina) 
    Strákar voru algjörlega í meirihluta í salnum, kannski voru þarna 6 stelpur af 100, sem er full skiljanlegt. Ég myndi allavega frekar velja þessa fram yfir Step Up 2! En hef þó séð þær margar betri.  En viljiru sjá blóðsletturnar nánast klínast í andlitið á þér, þá gogogo !


Ætla að byrja að safna hári og ganga um með band um hárið!

         

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 11:51:21 / busar

Ronaldo

Í gærkvöld átti sér stað alveg skelfilegur atburður.. Goðsögnin Ronaldo (ekki Christiano heldur hinn eini sanni Ronaldo)  sleit krossbönd! Eða að því er virðist..  Ronaldo hefur alla tíð verið einn uppáhalds leikmaður minn og er hann að mínu mati besti framherji allra tíma!  Það sannar sig bara þegar litið er á ferilinn hjá honum, talandi ekki um þegar hann kom til baka á HM 2002 og skoraði 8 mörk! 
    Þessar fréttir í gær eru því alveg skelfilegar fyrir knattspyrnuheiminn því Ronaldo var að koma sér aftur á fullt skrið og var ég farinn að hlakka innilega til að sjá hann spila aftur í toppformi!  En neii.. hann sleit aftur krossbönd..
  Þeir sem vilja sjá slysið geta klikkað á linkinn hér fyrir neðan.. Sennilega eitt það sársaukafyllsta sem getur komið fyrir mann !

http://www.youtube.com/watch?v=XHk2O_c0src

Hérna er einnig myndband sem sýnir hversu ógeðslega góður Ronaldo er

http://www.youtube.com/watch?v=etrmZ0fwlJ8






» 1 hafa sagt sína skoðun

13.02.2008 18:41:44 / busar

Gotham.

Jæja, nú er búið að skila listanum og allt orðið klárt fyrir Flóafárið!
Fundurinn sem var í hádeginu í dag heppnaðist ágætlega, við skipuðum í undirbúningsnefndir.  T.d til að skreyta svæðið o.s.frv.. og einnig tókum við niður bolastærðir.
   Næsta mál á dagskrá eru búningar.. Við ætlum að panta boli, og kostar hver bolur 600 kr og þarf að vera búið að borga það fyrir miðvikudag. Bolurinn er svartur með logo framan á, mjög töff.  Einnig ætlum við að reyna að hafa skikkjur, og þeir sem eru áhugasamir um það, ræði bara við okkur.  Það er ekki alveg ákveðið hvort við græjum það sjálf eða þið sjálf sjáið um það, kemur í ljós bráðlega!
         Fleiri upplýsingar von bráðar

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 15:02:08 / busar

Ragnarr Idiot!

    Átti klárlega mínar skemmtulegustu frímínútur í langan tíma áðan, ég, Stebbi, Ragnarr og Binni Elvars spiluðum nefnilega idiot!  Algjört snilldarspil, og þykir mér sárt að viðurkenna að ég hafði aldrei spilað það áður!  Enda ekki mikill spilamaður.. 
    Það sem helst stóð upp úr þessu spili hjá okkur var hversu rosalegur Ragnar Reifsneider er í þessu.  Sneggri hönd hef ég bara aldrei séð!  Hann fær því algjörlega hrós dagsins að mínu mati fyrir að vera idiot meistarinn, því ég held hann hafi unnið ca. 8 spil af 10 or sum! :þ  Mér tókst samt að vinna einu sinni! JÁ!!

 Það verður því klárlega áframhald á idiot í frímó!

 

Ragnar fer einnig reglulega í snjókast í frímó með 6.bekkingum í Sólvallaskóla!


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 17:15:08 / busar

Gettu Betur og Flóafár!

Breytt snið á Gettu Betur.. vegna ófærðar verður keppnin færð til Reykjavíkur.!  Veit ekkert meir um þetta :þ 

Plúles
Plólinn verður í ham næsta föstudag í Gettu Betur!

 

Næsta mál á dagskrá er síðan Flóafár!! Þeir sem að eru með fullu viti eru sennilega nú þegar búnir að skrá sig í hið ómótstæðilega lið okkar Plóla, sama lið og hefur unnið keppnina undanfarin 3 ár! Þá sem Smurfs, Sven Bömvollen og Spongebob Squarepants.!

Þemað okkar í ár er sjálfur Batman, eða kannski frekar city of Gotham.. Þar sem við ætlum að reyna að innihalda allar helstu fígúrurnar og vondu kallana;þ

Þeisem í okkar liði verða svo að muna að liðsfundur verður haldinn næstkomandi miðvikudag (r 13.feb.) í hádeginu í salnum! Þar ætlum við að ræða saman um þemað, skipa í skipulagsnefnd o.s.frv. Mjög gaman.


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 19:18:54 / busar

Go Gunners !

Ég vill bara að menn pæli aðeins í þessu.. Mínir menn, já Arsenal, eru á toppnum eftir æðislegan sigur á Man City, og getum við líka þakkað United fyrir að skíta út einu stigi úr þessari umferð ;D

Skoðið bara töfluna og meltið þetta smá ! Titillinn í augnsýn !

Og ég veit ekki betur en að Liverpool ætlar að missa af meistaradeildar sæti til nágranna sinna.. hversu ógeðslega svalt væri það?!! Ég segi því bara áfram Everton næstu 13 umferðir!

 

Arsenal2560
Man Utd2558
Chelsea2554
Everton2544
Liverpool2443
Aston Villa2541
Man City2541
Blackburn2539
Portsmouth2538
West Ham Utd2436
Tottenham2529
Newcastle2528
Middlesbrough2526
Bolton2525
Wigan Athletic2523
Sunderland2523
Reading2522
Birmingham2521
Fulham2519
Derby County259

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 09:26:45 / busar

Selfoss - Grótta

Jæja í kvöld er loksins komið að því, leikurinn sem eflaust allir í okkar liði eru búnir að bíða eftir ! Grótta kemur í heimsókn! Sona fyrir þá sem lítið pæla í þá er Grótta liðið sem sennilega mest hefur vælt undan svokallaðri "villimennsku" okkar í leikjum. Ákveða það fyrirfram að við munum spila grófan handbolta og hreinlega notast við hnefana.. Og fyrir þá sem séð hafa leiki okkar Selfoss vita mætavel að það er langt frá því sannleikurinn! Við spilum bara vörn eins og á að spila hana.. af hörku! Finnst mér alveg glatað að menn mæti í leik búnir að ákveða það að Selfyssingar séu bara villingar og fífl. Kannski mar eigi bara að mæta þannig til leiks einu sinni og standa undir nafni.. ég veit ekki, kannksi allt fari þá bara í vitleysu..;p jaa eflaust.. En Grótta mun sko sannarlega ekki koma hingað til að sækja stig, ónei!
Ætla ég að vona að allir fái sér fært að mæta á þennan leik og minni ég á að það er hægt að nálgast ókeypis miða upp í B&L Selfossi:þ Leikurinn byrjar stundvíslega kl. 19:15, og búumst við hörku stemningu, með þá Marino Lill, Fannar Frey og Krulla Jóhannsson í fararbroddi á trommunum!

 

A.K. All the way lofar ykkur markaregni!

 

Baldur heilsar

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 22:17:19 / busar

Youtube.

Ég er soldið mikill netnördi, og þá eyði ég mest löngum tímum í að hanga á youtube.com og skoða hin ýmsu myndbönd, sum alveg snilld. Alveg frá tónlistarmyndböndum, yfir í einhver heimagerð snilldarmyndbönd. Ég ætla svona að deila með ykkur mínum uppáhalds myndböndum, sem ég get horft á mörg hver alveg endalaust..!

http://youtube.com/watch?v=dMH0bHeiRNg
-Evolution of Dance. Alger snillingur að dansa! Vinsælasta youtube myndband allra tíma!

http://youtube.com/watch?v=WaIR9dAZRR0
Trailer af næstu Batman mynd. Heath Ledger leikur Jokerinn, ógeðslega flottur! R.I.P.

http://youtube.com/watch?v=1uwOL4rB-go
-Jeff Dunham búktalari og brúðan Achmed the dead Terrorist. Eitt það fyndasta sem ég hef séð!

http://youtube.com/watch?v=1JynBEX_kg8&feature=related
-Two Talking cats translation. Ógeðslega fyndið myndband af tveim köttum!

http://youtube.com/watch?v=QjA5faZF1A8
-E-ð gamalt frægt lag spilað á gítar af e-jum gaur, sjúklega flott!

http://youtube.com/watch?v=ATub40Npxik&feature=related
-Þessi er einnig fáránlegur á gítarinn!

http://youtube.com/watch?v=5P6UU6m3cqk
-Ef þú vilt hlæja smá !

http://youtube.com/watch?v=gZIuzQcvlTU
-Ace Ventura á geðsjúkrahúsinu. Eitt fyndnasta bíóatriði allra tíma!

http://youtube.com/watch?v=WZHZF_0P7rc
-Bjarki Már Elísson. Greatest handball player of Iceland since Olafur Stefansson.. riight

http://youtube.com/watch?v=GuMMfgWhm3g
-Þessir tveir eru fyndnir. Horfið sérstaklega á seinni helminginn! 

Svo mæli ég bara með að folk surfi þarna, það er hægt að missa sig !

Skoðið eitthvað af þessu og commentið..

 

Baldur Þór


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 17:23:38 / busar

EM í Handbolta

Nú var Evrópumótinu í handbolta að ljúka, og voru það ekki bara frændur vorir Danir sem báru sigur úr bítum.! Sjálfur hélt ég nú með Frökkunum á þessu móti þegar í ljós kom að Íslendingarnir þyrftu að treysta á vinstri hornamann í skyttuna og að vörninni yrði haldið saman af Sverri Jakobssyni. Mátti eiginlega segja að þá hafi mótið strax verið búið hjá okkur.. En ég lagði þá ekki bara árar í bát og fór að halda með Frökkunum, eins og ég hef iðulega gert síðan maður sá þá fyrst spila með sjálfan Jackson Richardson í fararbroddi. Jacksoon Richardson
Flottur Jackson með dreddana.

Ég sem sagt fór þá að vonast eftir úrslitaleik af hálfu Frakka, þá sennilegast gegn Þýskalandi, en neinei, þeir mættu Króötum í úrslitaleik, og voru gjörsamlega svæfðir til ósigurs. Fór þar fremstur í flokki sennilega klókasti handboltamaður í heimi, Ivano Balic, þessi leikur hreinlega snerist um hvað hann gerði.
Úrslitaleikurinn var síðan á milli Króata og Dana, sem kláruðu Þjóðverja í undanúrslitum, með víti á síðustu sekúndu frá besta slúttara í heimi, Lars Christiansen. Danir og Króatar mættust því í úrslitaleik, sem Danir á endunum sigruðu, en það má nú alveg réttilega benda á dómgæsluna í þeim leik sem var alveg fáránleg og hallaði vægast sagt á Króata! En það fylgir víst bara og maður ætti nú að þekkja það héðan af klakanum í fyrstu deildinni. Þið sem hafið mætt á leiki hjá okkur í Selfoss hljótið að hafa tekið eftir því !

Ágætt mót samt í heildina, fyrir utan bara það eitt að ekki var hægt að horfa á nema örfáa leiki þar sem Rúv voru svo skemmtilegir að nánast ignora þessa keppni. Gott dæmi hér í úrslitaleiknum, þar sem klippt var á útsendingu um leið og leiknum lauk og þess í stað skipt yfir í Silfur Egils !! Þýddi þetta að maður horfði á ca. helmingu færri leiki á þessu móti en maður vanalega hefur getað gert.

Vill ég síðan hvetja alla sem sjá þetta í dag til að mæta í Vallaskóla í kvöld kl. 8 og hvetja okkur í 2.flokk til sigurs gegn Víking, í 8 liða úrslitum í bikarkeppninni.  Ætlum við auðvitað að sigra!  Næsti leikur hjá meistaraflokk verður síðan næstkomandi föstudag (1.febrúar) kl. 19:15 gegn Gróttu.  Get ég lofað ykkur alvöru hörku þar og jafnvel smá blóði!

Baldur Busi 


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 09:20:50 / busar

Risinn er risinn...eftir 2 ára hlé!

Þetta er skrítin tilfinning, að koma inná þessa síðu.. nostalgíukast!  Þetta voru algjörir snilldar tímar, og eru.  Gaman að þessu!

 Fyrst langar mig nú að monta mig að því að ég er í óveðursfríi í dag... snowday!  A.m.k. allir frá Þolló fengu frí í skólanum :) Stundum er gott að búa hérna.. 3ji dagurinn á 2 vikum sem er óveðursfrí!  

Svo fer líka að styttast í flóafárið... sjitt það verður alltof gaman :D allt komið á skrið!  Og við stefnum á það að vinna, að sjálfsögðu...

 En já svo ég endi á einum nauðguðum frasa,

 

Eigum við að ræða það eitthvað?

 

Neinei

Kv.

Billzi ljósálfur 

  


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 16:24:46 / busar

Endurlífgun!

Já góðan dag.. Síðasta færsla hér kom miðvikudaginn 7. júní 2006! Þá ákváðum við Brynjólfur einmitt að taka okkur smá pásu frá öllu glamúrlífinu, frægðinni og framanum sem fylgir blogginu. Málið var bara þannig að það var hvergi hægt að fá frið.. Þú labbaðir inn í mötuneyti þá var kominn hópur að þér að biðja um eiginhandaráritun eða biðja þig um að blogga um e-ð málefni.. Útí búð var sópast að þér, inná skemmtistöðum hópuðust stelpurnar að okkur.. við hreinlega réðum ekki við það..! Því ákváðum við bara að segja stopp! Hingað og ekki lengra.. Fórum við því inn í herbergin okkar og höfum verið þar síðan, einungis borðað heimsendar pizzur frá Hróa og stöku sinnum pönnukökur sem mömmu tekst að troða ofan í mig..
En við erum vaknaðir, hressari og ferskari en aldrei fyrr og algjörlega endurnærðir!

Margt hefur gerst síðan þennan örlagaríka dag, sem reyndar var 9.júní nánartiltekið kl. 19:49 þegar Billi steig út úr bíl sínum fyrir utan Skálann í Þorlákshöfn og var gjörsamlega hafður undir af hundruðum brjálaðra aðdáenda, einungis nokkrum klukkutímumeftir taugaáfall mitt á ársþingi bloggara á Eyrabakka.. (vill ekki ræða það )
En já margt hefur gerst eins og ég sagði, mikið (alltof mikið ) að gerast hjá manni í handboltanum, hættur í fótboltanum, Brynjólfur farinn að aðhyllast þau trúarbrögð sem að Sjálfstæðisflokkurinn er, og Sigurjón meðfélagi er kominn í skátana.. Ótrúleg þróun.

En já, þetta var bara svona fyrsta innlegg hér og klárlega ekki það síðasta!

Vill ég líka minna fólk á að það styttist í Flóafár, og er að sjálfsögðu stefnt á sigur FJÓRÐA ÁRIÐ Í RÖÐ!

Þangað til næst, Baldur Ljósálfur (sem er orðinn dökkhærður núna) kveður;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9